Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. október 2026 15:48 Tryggvi Hallgrímsson sérfræðingur Jafnréttisstofu og Gary Barker framkvæmdastjóri Equimundo á ráðstefnu í Hörpu í nóvember í fyrra. Jafnréttisstofa segist hvorki hafa borið ábyrgð á rannsóknarhönnun né lokaskýrslu umdeildrar rannsóknar sem unnin var af alþjóðlegu hugveitunni Equimundo að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir norrænna karla um karlmennsku. Íslenskir fræðimenn hafa gagnrýnt rannsóknina og sagt að setja verði fyrirvara við niðurstöður hennar sem virtust benda til þess að hugmyndir íslenskra karla væru íhaldssamari en annarra norrænna karla.
Vísir ræddi málið við Hafstein Einarsson doktor í félagstölfræði sem setti stór spurningamerki við framkvæmd könnunarinnar. Hann sagði um að ræða vinnubrögð sem ekki þekkist í íslenskum félagsrannsóknum og óheppilegt væri að Norræna ráðherranefndin væri skrifuð fyrir skýrslunni. Vísir hefur sent Equimundo fyrirspurn vegna málsins en engin svör höfðu borist þegar þessi frétt fór í loftið. Jafnréttisstofa birti á föstudag tilkynningu um rannsóknina á vef sínum. Sagði stofnunin að fulltrúar hennar hefðu setið í ráðgjafarhópi sem studdi við framkvæmd rannsóknarinnar. Var bent á aðferðafræðina í tilkynningunni og að fara þyrfti varlega í að túlka niðurstöður. Sagði að rannsóknin veitti þó afar gagnlegar vísbendingar um viðhorf og hugmyndir sem finna megi meðal karla á Norðurlöndunum. „Jafnréttisstofa átti fulltrúa í norrænum ráðgjafahópi rannsóknarinnar. Hlutverkið var ráðgefandi og Jafnréttisstofa bar hvorki ábyrgð á rannsóknarhönnun né lokaskýrslu. Ráðgjöf Jafnréttisstofu fólst meðal annars í því að vísa rannsakendum á spurningakönnunarfyrirtæki á Íslandi sem taka að sér úrtaksvinnu og rannsóknir og fræðimenn sem gætu veitt frekari aðstoð við framkvæmd könnunarinnar,“ segir í svari Tryggva Hallgrímssons sérfræðings Jafnréttisstofu við fyrirspurn Vísis. Vísir sendi Jafnréttisstofu fyrirspurn vegna málsins í þremur liðum. Sjá má svör stofnunarinnar hér fyrir neðan. 1. Yfirfóru fulltrúar Jafnréttisstofu endanlega íslenska spurningalistann áður en hann var lagður fyrir þátttakendur? „Fulltrúar Jafnréttisstofu komu að yfirferð spurningalistans í ráðgjafahlutverki. Jafnréttisstofa vill þó gera greinarmun á slíkri ráðgjöf og ábyrgð á þýðingu, uppsetningu eða fyrirlögn könnunarinnar. Jafnréttisstofa getur ekki staðfest að sú útgáfa sem stofan fékk til yfirferðar hafi að verið samhljóða endanlegu útgáfu sem lögð var fyrir þátttakendur. Sú ábyrgð er hjá rannsakendum og framkvæmdaraðila rannsóknarinnar, í þessari rannsókn Equimundo og Repdata.“ 2. Telur Jafnréttisstofa niðurstöðurnar nægilega traustar til að draga ályktanir um viðhorf íslenskra karla og bera þau saman við viðhorf karla annars staðar á Norðurlöndum? „Í frétt um útgáfu skýrslunnar á heimasíðu Jafnréttisstofu, 2. október síðastliðinn, kemur fram að mikilvægt sé að hafa aðferð rannsóknarinnar í huga, þegar niðurstöður einstakra landa eru skoðaðar. Niðurstöðurnar geta gefið vísbendingar, en ekki er rétt að túlka þær sem nákvæma lýsingu á íslenskum körlum eða gera afgerandi samanburð milli landa án fyrirvara.“ 3. Hefur Jafnréttisstofa áhyggjur af því að birting og kynning niðurstaðna úr rannsókn sem Hafsteinn Einarsson telur svo illa unna geti brenglað umræðu um karla, karlmennsku og jafnrétti og þannig unnið gegn þeirri upplýstu umræðu sem stofnunin vill stuðla að? „Jafnréttisstofa tekur þá faglegu gagnrýni sem fram hefur komið á rannsóknina alvarlega og telur mikilvægt að rannsóknin sé rædd og metin með málefnalegum og gagnrýnum hætti. Jafnréttisstofa tekur það fram í frétt um útgáfu skýrslunnar, 2. október síðastliðinn, að rannsóknin geti þó gefið gagnlegar vísbendingar um viðhorf og hugmyndir sem finna má meðal karla á Norðurlöndunum. Rannsóknin fjallar um mikilvæg samfélagsleg viðfangsefni og getur vonandi orðið hvatning til frekari rannsókna og umræðu um áhrif neikvæðra kynjaímynda og neikvæðra staðalímynda um hlutverk kynjanna.“
Jafnréttismál Skoðanakannanir Háskólar Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið Sjá meira