Erlent

Carter fékk fangann látinn lausan

Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.
Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna. Mynd/AFP

Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, lagði af stað frá Norður-Kóreu í nótt þar sem honum tókast að fá látinn lausan bandarískan ríkisborgara sem setið hefur í fangelsi í landinu frá því í byrjun árs.

Maðurinn sem er kennari var dæmdur til átta ára þrælkunarvistar fyrir að hafa komið ólöglega inn í landið en yfirvöld í Norður-Kóreu fullyrtu að hann væri njósnari. Von er á kennaranum og Carter til Boston síðar í dag






Fleiri fréttir

Sjá meira


×