Innlent

Alvarlegum umferðarslysum fækkaði um 15%

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Umferð. Mynd/ Stefán.
Umferð. Mynd/ Stefán.
Alvarlegum umferðarslysum fækkaði um 15% í fyrra, eða úr 200 í hitteðfyrra í 170 slys á síðasta ári. Þetta sýna niðurstöður samantektar slysaskráningar Umferðarstofu á umferðarslysum fyrir síðasta ár. Slysaskráning Umferðarstofu byggist á lögregluskýrslum úr gagnagrunni Ríkislögreglustjóra.

Umferðarstofa segir þó að það falli sá skuggi á að 17 létust í 15 slysum í umferðinni í fyrra en árið 2008 létust 12 í jafn mörgum slysum. Þetta sé þó langt undir meðaltali þess fjölda sem látist hefur í umferðarslysum á Íslandi undanfarin tíu árum en það eru að jafnaði 22 einstaklingar á ári. Á síðustu þremur árum hafa að meðaltali tæplega 15 látist í umferðarslysum á landinu, en næstu þrjú ár á undan létust rúmlega 24 ár hvert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×