Framtíðarsýn spítala og háskóla samofin 2. febrúar 2010 03:00 Stefnt er að því að samþætta enn frekar starfsemi Landspítalans og Háskóla Íslands. mynd/lsh
Nýtt klínískt rannsóknasetur Landspítalans og Háskóla Íslands var opnað á dögunum. Setrið er áfangi í að auka samstarf stofnananna tveggja en framtíðarsýn forstjóra LSH er að heilbrigðismenntun færist meira og minna til spítalans. „Þegar við flytjum inn í nýtt hús vona ég að búið verði að samþætta enn frekar starfsemi Landspítalans og háskólans. Þróunin er öll í þessa átt að heilbrigðishluti háskólanna sé rekinn saman en ekki sem tvær stofnanir. Á það bæði við um húsnæði og stjórnkerfið,“ segir Björn Zoëga, forstjóri LSH. Björn segir að fyrirmyndin við uppbygginguna sé í sínum huga Karólinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi, sem er talið eitt fremsta háskólasjúkrahús í heimi. „Við erum með heilbrigðisþjónustu sem er hátt skrifuð í heiminum. Mæling OECD sýnir að rannsóknir og vísindi á heilbrigðissviði hér á landi er meðal þess mesta sem gerist. Við viljum byggja á þessu og erum því að auka svokallaðar klínískar rannsóknir.“ Þar vísar Björn til hagnýtra rannsókna, eins og til dæmis á lyfjum og lækningatækjum, en LSH hefur lengi verið í fremstu röð í grunnrannsóknum. Hann segir að fyrirtæki leiti nú frekar til stofnana um samstarf í stað samstarfs við einstaklinga áður, sem byggir undir áðurnefnda samþættingu LSH og HÍ sem er mikil fyrir. „Á hverju ári erum við að mennta um ellefu hundruð nemendur og erum því ein af fimm stærstu menntastofnunum landsins,“ segir Björn. „Það má líka benda á það að fjórar af hverjum tíu vísindagreinum Íslendinga hafa tengsl inn á Landspítalann og vel yfir tíu prósent af rekstrarkostnaði spítalans er í raun kostnaður við að vera háskólaspítali.“ Björn vitnar til orða Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra á læknadögum nýverið um að HÍ „ætli og verði“ að fylgja spítalanum eftir í uppbyggingu. Katrín segist hafa viljað ítreka að við Hringbraut rísi ekki aðeins spítali heldur einnig mennta- og rannsóknastofnun. Aðspurð hvort á teikniborðinu séu áform um byggingar á vegum háskólans sem tengjast muni nýju sjúkrahúsi segir Katrín ekkert í hendi hvað það varðar. „Í framtíðinni er hugsunin hins vegar að öll heilbrigðismenntun háskólans verði með einum eða öðrum hætti tengd sjúkrahúsinu. Hins vegar þarf vart að taka það fram að hugsunin er ekki sú að eyða stórum fjármunum í þetta.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Sjá meira