Húnvetningar fjalla um vegstyttingu 2. febrúar 2010 18:40
Stytting hringvegarins framhjá Blönduósi um fimmtán kílómetra er án nokkurs vafa ein arðbærasta framkvæmd sem hægt er að ráðast í hér á landi. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar við Háskólann í Reykjavík. Í Húnavatnssýslum berjast heimamenn gegn því að Vegagerðin nái fram áformum sínum.Hugmyndin að leggja sextán kílómetra veg frá Stóru-Giljá, framhjá Húnavallaskóla, og þvert inn í miðjan Langadal, með nýrri brú á Blöndu, hefur lengið verið til skoðunar. Fyrir þremur árum taldi Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri þessa styttingu skila 27 prósenta arðsemi, sem þýðir að hún myndi borga sig upp á fjórum árum.Nú í desember voru birtir nýir hagkvæmniútreikningar; í lokaverkefni Sigbjörns Björnssonar í byggingartæknifræði við Háskólann í Reykjavík. Samkvæmt þeim er arðsemin 21 prósent, - sem þýðir að vegurinn borgi sig upp á fimm árum. Er niðurstaðan sú að þetta sé ein arðbærasta framkvæmd sem hægt er að ráðast í hér á landi. Þó er tekið fram að íbúar Blönduóss yrðu fyrir einhverjum neikvæðum áhrifum vegna minni viðskipta við þjónustuaðila í bænum.Og þar stendur einmitt hnífurinn í kúnni. Vegagerðin hefur óskað eftir því að fá vegstyttinguna inn á aðalskipulag viðkomandi sveitarfélaga. Íbúafundur í Húnavatnshreppi í gærkvöldi skoraði á sveitarstjórnina að hafna ósk Vegagerðarinnar og nú síðdegis hófst íbúafundur á Blönduósi þar sem fastlega er búist við að erindi vegagerðarmanna fái sömuleiðis óblíðar móttökur.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Sjá meira