Náttfari yfirheyrður í allan dag 2. febrúar 2010 18:41
Sautján ára piltur hefur í allan dag verið yfirheyrður af lögreglunni á Selfossi vegna gruns um að hann hafi brotist inn í tugi bíla í bænum á síðustu mánuðum. Hann náðist í nótt eftir að hann gekk í gildru lögreglunnar og hefur hann játað brot sín. Pilturinn hefur gengið undir nafninu náttfari. Síðustu þrjá mánuði hefur hann farið inn tugi ólæstra bíla í bænum að nóttu til og stolið þaðan lauslegum hlutum eins og GPS tækjum, myndavélum og lausafé. Lögregla hefur lagt í mikla vinnu til að hafa uppi á þjófnum. Á meðal þess sem nýttist við leitina er þetta myndband. Það var tekið upp í síðustu viku á myndavél við heimahús í bænum sem tengd er Öryggismiðstöðinni. Þar sést pilturinn fara inn í bíl seint að nóttu. Pilturinn lét læsta bíla vera. Hann rændi einungis úr þeim sem voru ólæstir og skemmdi ekkert. Lögreglu hefur reynst erfitt að hafa hendur í hári hans enda hefur hann verið fljótur að athafna sig. Eftir að grunur tók að beinast að piltinum fór lögregla að fylgjast með honum. Í nótt fór hann enn á ný á kreik en gekk í gildru lögreglu að þessu sinni í Tjarnarhverfi á Selfossi. Hann var handtekinn á staðnum og hefur verið yfirheyrður í allan dag og játað á sig fjölmarga þjófnaði úr bílum. Við húsleit heima hjá honum fannst einnig þýfi. Hann hefur komið við sögu lögreglu. Lögreglan segir erfitt á þessari stundu henda reiður á hversu miklu pilturinn náði að stela á næturferðum sínum.
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Neitað um lausn gegn tryggingu Erlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Fleiri fréttir Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Sjá meira