Erlendir fjárfestar! Komið ekki nálægt Íslandi! 2. febrúar 2010 18:47
Ríkisstjórnin sendir þau skilaboð að erlendir fjárfestar eigi ekki að koma nálægt Íslandi. Á þessa veru voru viðbrögð stjórnarandstæðinga á Alþingi í dag við þeirri ákvörðun umhverfisráðherra að stöðva Þjórsárvirkjanir. Iðnaðarráðherra telur að höggva eigi á hnútinn þverpólitískt á vettvangi rammaáætlunar.Landsvirkjun er búin að láta fullhanna þrjár virkjanir í neðri Þjórsá, við Urrriðafoss, Holt og Hvamm. Í fyrstu var lítil andstaða við virkjanirnar og þær runnu í gegnum umhverfismat nær átakalaust fyrir sex árum. En þetta hefur síðan breyst og í gær neitaði Svandís Svavarsdóttir að staðfesta aðalskipulag tveggja sveitarfélaga, með virkjununum inná.Iðnaðarráðherra treysti sér ekki fyrr í dag til að hafa skoðun á þeim úrskurði. Katrín Júlíusdóttir sagðist enn eiga eftir að fara yfir hann í smáatriðum. Spurð hvort hún vildi að þarna yrði virkjað kvaðst Katrín vilja leyfa sér að geyma þá yfirlýsingu þangað málið væri komið út úr rammaáætlunarnefnd og til þingsins til umræðu. Það segir Katrín lykilfarveg. Þetta eigi ekki að vera skyndiákvörðun hverju sinni heldur faglegt mat og þverpólitískt.Í þingsal deildu stjórnarandstæðingar hart á Svandísi í dag. Fyrrrverandi umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, kom henni til varnar,- minnti á að hún byggði á úrskurði Kristjáns L. Möllers sveitarstjórnarráðherra frá því síðastliðið sumar, og færði Þórunn ábyrgðina yfir á hann. Menn væru að hengja bakara fyrir smið.Hún sagði gildandi landslög vera kjarna málsins. Þetta snerist um það hvort tiltekin fyrirtæki, orkufyrirtæki eða önnur, eða kannski verktakafyrirtæki, geti eða geti ekki keypt sér skipulagsgerð.Sjálfstæðismenn sögðu þetta snúast um allt annað. Ragnheiður Elín Árnadóttir sagði að menn ættu að segja þetta hreint út: Vinstri grænir vilji ekki virkjanir í neðri Þjórsá. Það væri það eina sem væri borðleggjandi í þessu máli.Jón Gunnarsson sagði flótta brostinn í erlenda fjárfesta. Skilaboð ríkisstjórnarinnar til erlendra aðila, sem hér vilji fjárfesta, séu þau sömu: Komið ekki nálægt Íslandi!
Mest lesið Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar Erlent „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Innlent Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Erlent Ætlar að peppa herforingjana á fundinum fordæmalausa Erlent Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Erlent „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Innlent Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Innlent Fleiri fréttir Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið „Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Sjá meira