Bankaráðsseta Láru geri hana vanhæfa 8. september 2010 12:21 MYND/Pjetur
Mál níumenninganna svokölluðu var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Verjandi fjögurra þeirra fór fram á að settur ríkissaksóknari myndi víkja vegna tengsla hennar við Alþingi. Níumenningarnir eru meðal annars ákærðir fyrir árás á Alþingi í tengslum við Búsáhaldabyltinguna. Fyrirtaka átti að fara fram í málinu í morgun en Ragnar Aðalsteinsson verjandi fjögurra sakborninga fór fram á að Lára V. Júlíusdóttir settur saksóknari myndi víkja meðal annars vegna tengsla hennar við Alþingi. Sagði Ragnar setu hennar í bankaráði Seðlabankans gera það að verkum að hún væri vanhæf í málinu, þar sem Alþingi hefði kosið hana til setu í ráðinu en þar gegnir hún formennsku. Lára veitti andsvar og sagði Seðlabankann meðal annars vera sjálfstæða stofnun, ekkert vinnusamband væri á milli bankaráðsins og Alþingis. Þetta er í annað sinn sem Ragnar fer fram á frávísun í málinu, en um miðjan ágúst, þegar málið var tekið fyrir fór Ragnar fram á að Pétur Guðgeirsson dómari viki sæti. Sagði hann aðkomu lögreglu meðal annars gera það að verkum að dómari væri vanhæfur. Þessu var dómari ekki sammála, og Hæstiréttur tók undir það. Nokkuð rólegri stemmning var við þinghaldið í morgun en síðast þegar málið var tekið fyrir, en þá kom til átaka milli þeirra sem staddir voru í héraðsdómi og lögreglu sem þá var með fjölmennt lið á vettvangi. Lögregla var hinsvegar hvergi sjáanleg í dómshúsinu í morgun, að undanskildum tveimur lögregluþjónum sem sátu úti í bíl fyrir utan dómshúsið.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Sjá meira