Innlent

Klám einkennist af ofbeldi

Klám og klámvæðing er til umræðu á opnum fundi í Þjóðminjasafninu. Fréttablaðið/AFP
Klám og klámvæðing er til umræðu á opnum fundi í Þjóðminjasafninu. Fréttablaðið/AFP

Hinir ýmsir þættir klámmenningar og áhrifa þess í samfélaginu verða ræddir á vegum nokkurra sviða innan Háskóla Íslands á opnum umræðufundi í hádeginu í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands í dag.

Klámvæðing og klámmenning hefur aukist hér á landi. Með klámvæðingu er átt við að sífellt sé daðrað við táknmyndir og tilvísanir kláms í dægurefni og mörkum hins „eðlilega“ og leyfilega ögrað og þau víkkuð út. Andstaða gegn klámi byggist helst á þeirri mynd sem þar er dregin upp af konum og körlum og gjarnan byggð á ofbeldi, eins og segir í tilkynningu um fundinn.

- jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×