Innlent

Borgarafundur gegn fátækt: Steingrímur og Jóhanna í felum

Erla Hlynsdóttir skrifar
Forsvarskona aðgerðahóps um bætt samfélag segir Steingrím J. og Jóhönnu í felum fyrir þjóðinni
Forsvarskona aðgerðahóps um bætt samfélag segir Steingrím J. og Jóhönnu í felum fyrir þjóðinni

„Ríkisstjórn Íslands á ekki að brenna upp heimilin og lama þjóðina," segir María Jónsdóttir, námsmaður og bótaþegi. Hún kemur að skipulagningu borgarafundar gegn fátækt sem aðgerðahópur um bætt samfélag, BÓT, stendur fyrir í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld.

María var gestur Heimis Karlssonar og Kolbrúnar Björnsdóttir Í bítinu á Bylgjunni í morgun

Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar fengu boð á fundinn en hvorki Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra né Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafa svarað boðinu. Það vekur nokkra undrun Maríu að hvorki þessir ráðherrar, formenn ríkisstjórnarflokkanna, né talsmenn þeirra hafi gefið sér tíma til þess eins að svara boði vegna borgarafundar um fátækt: „Við erum í vandræðum með Steingrím J. og Jóhönnu því þau virðast bara vera í felum fyrir þjóðinni," sagði María í samtali við Kollu og Heimi í morgun.

María segist að vísu vel skilja að Jóhanna komi ekki þar sem hún er erlendis en þykir engu að síður miður að hafa ekki fengið neitt svar.

Af þeim ráðherrum sem þegar hafa staðfest komu sína er einan að nefna Ögmund Jónasson, eftir því sem fréttastofa kemst næst. Guðbjartur Hannesson svaraði fundarboði og sendir hann fulltrúa sína frá ráðuneytinu.

Í tilkynningu frá BÓT segir að markmið fundarins séu að fátækt verði viðurkennd, að gripið verði til aðgerða gegn fátækt, að lágmarksframfærsla verði endurreiknuð og að ríkisstjórnin beiti sér gegn eignaupptöku.

„Við segjum nei við því að fólk svelti," segir María.

Fundurinn hefst klukkan átta í kvöld í Ráðhúsinu og er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Fundarstjóri verður séra Þórhallur Heimisson en hann verður með tvo aðstoðarmenn sé til fulltingis.

Meðal annarra gesta í kvöld verða Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, og Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur.

Upptöku af viðtalinu við Maríu á Bylgjunni má heyra með því að smella hér.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×