Borgarafundur gegn fátækt: Steingrímur og Jóhanna í felum Erla Hlynsdóttir skrifar 8. september 2010 10:54 Forsvarskona aðgerðahóps um bætt samfélag segir Steingrím J. og Jóhönnu í felum fyrir þjóðinni „
Ríkisstjórn Íslands á ekki að brenna upp heimilin og lama þjóðina," segir María Jónsdóttir, námsmaður og bótaþegi. Hún kemur að skipulagningu borgarafundar gegn fátækt sem aðgerðahópur um bætt samfélag, BÓT, stendur fyrir í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld. María var gestur Heimis Karlssonar og Kolbrúnar Björnsdóttir Í bítinu á Bylgjunni í morgun Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar fengu boð á fundinn en hvorki Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra né Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafa svarað boðinu. Það vekur nokkra undrun Maríu að hvorki þessir ráðherrar, formenn ríkisstjórnarflokkanna, né talsmenn þeirra hafi gefið sér tíma til þess eins að svara boði vegna borgarafundar um fátækt: „Við erum í vandræðum með Steingrím J. og Jóhönnu því þau virðast bara vera í felum fyrir þjóðinni," sagði María í samtali við Kollu og Heimi í morgun. María segist að vísu vel skilja að Jóhanna komi ekki þar sem hún er erlendis en þykir engu að síður miður að hafa ekki fengið neitt svar. Af þeim ráðherrum sem þegar hafa staðfest komu sína er einan að nefna Ögmund Jónasson, eftir því sem fréttastofa kemst næst. Guðbjartur Hannesson svaraði fundarboði og sendir hann fulltrúa sína frá ráðuneytinu. Í tilkynningu frá BÓT segir að markmið fundarins séu að fátækt verði viðurkennd, að gripið verði til aðgerða gegn fátækt, að lágmarksframfærsla verði endurreiknuð og að ríkisstjórnin beiti sér gegn eignaupptöku. „Við segjum nei við því að fólk svelti," segir María. Fundurinn hefst klukkan átta í kvöld í Ráðhúsinu og er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Fundarstjóri verður séra Þórhallur Heimisson en hann verður með tvo aðstoðarmenn sé til fulltingis. Meðal annarra gesta í kvöld verða Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, og Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur. Upptöku af viðtalinu við Maríu á Bylgjunni má heyra með því að smella hér.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira