Lífið

Raggi Bjarna með stórsveit

Ragnar Bjarnason syngur í kvöld og á morgun með Stórsveit Suðurlands. Fréttablaðið/íris
Ragnar Bjarnason syngur í kvöld og á morgun með Stórsveit Suðurlands. Fréttablaðið/íris

Stórsöngvari íslenskrar dægurtónlistar, Ragnar Bjarnason, snýr aftur til upphafs síns á tveimur tónleikum með Stórsveit suðurlands þegar hann syngur með sveitinni lög úr söngbók big-bandsins á tónleikum á Selfossi í kvöld og í Iðnó annað kvöld.

Ragnar hóf feril sinn í hljómsveit föður síns á þeim árum þegar böndin voru stór á íslenskan mælikvarða og eltu bigband-hljóminn ameríska sem allsráðandi var frá blómatíma millistríðsáranna. Ragnar hefur síðan verið einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og skemmt landsmönnum í stórum og smáum húsum um allt land.

Raggi Bjarna er engum líkur og er þekktur fyrir glaðværð sína og skemmtilega sviðsframkomu: fyrri hluta tónleikanna mun Stórsveitin leika ein og óstudd nokkur lög. Má þar heyra hefðbundin swinglög, samba og funk. Eftir hlé kemur svo Raggi Bjarna og tekur lagið. Þá munu hljóma lög eins og New York New York, My way, All of me, Paper Moon og líka nokkur lög sem alþjóð þekkir í flutningi Ragga til dæmis hans eigið lag, Barn.

Sunnlendingar og nærsveitamenn eru hvattir til að fjölmenna á þessa skemmtun sem verður bara í þetta eina sinn hér sunnanlands. Daginn eftir geta svo Reykvíkingar safnast saman og notið flutnings Ragga og Stórsveitar Suðurlands í Iðnó en langt er síðan svo feitur hljómur hefur heyrst í gamla samkomuhúsi iðnaðarmanna við Tjörnina. pbb@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.