Innlent

Umferð farin að þyngjast

Borgarnes
Borgarnes
Umferð í gegnum Borgarnes er farin að þyngjast samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni í Borgarnesi. Umferðin hefur verið jöfn og þétt í allan dag, en nú er orðið „frekar þröngt á milli bíla", eins og varðstjóri orðaði það. Þrír hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í dag.

Þá hefur umferðin verið til tölulega róleg í gegnum Selfoss í dag að sögn lögreglunnar í bænum. Varðstjóri býst við því að umferðin þyngist þegar líða tekur á kvöldið. Lögreglan biðlar til ökumanna að keyra varlega og ekki ýta of fast á bensíngjöfina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×