Innlent

Fjöldi forstöðumanna segist ekki geta skorið niður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um 44% forstöðumanna hjá stofnunum sem reknar eru af íslenska ríkinu telja ólíklegt að frekari hagræðing náist í rekstri stofnunar þeirra. Hins vegar telja 36,1% það vera líklegt, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem Capacent Gallup hefur látið gera. Vinna við fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár stendur yfir núna.

Ljóst er að hagræðingakrafa til einstakra málaflokka hleypur á bilinu 5-10%. Það er þungur baggi að bera fyrir margar stofnanir. Til dæmis er skammt síðan að Kirkjuráð neitaði með öllu að verða við 9% hagræðingarkröfu sem gerð er til Kirkjunnar. Guðbjartur Hannesson, þáverandi formaður fjárlaganefndar, sagði við það tækifæri að allt væri undir við fjárlagagerðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×