Innlent

Funda með Buchheit

Heimir Már Pétursson skrifar
Forystumenn ríkisstjórnarinnar funda með Buchheit. Mynd/ GVA.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar funda með Buchheit. Mynd/ GVA.
Forystufólk stjórnar og stjórnarandstöðu situr nú í hádeginu fund með Lee Buchheit formanni samninganefndar Íslands í Icesave deilunni í fjármálaráðuneytinu.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að vonandi gæti orðið að samningafundi með Bretum og Holendingum sem fyrst.

Hann og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sögðust ekki sátt við þá mynd sem hollenski fjármálaráðherrann dró upp af stöðu mála í fjölmiðlum í gær, þegar hann sagði boltann hjá Íslendingum. En vonandi skýrðust mál á fundinum í hádeginu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×