Tukthúsklefar í kjallara Útvarpshússins 31. janúar 2010 19:04
Kristján L. Möller samgönguráðherra upplýsti á mótmælafundi á Egilsstöðum í gær að sú hugmynd hefði verið rædd í ríkisstjórn að taka Útvarpshúsið í Efstaleiti undir lögreglustöð, enda væri gott pláss fyrir tukthúsklefa í kjallaranum. Mótmælafundir voru haldnir bæði á Egilsstöðum og Ísafirði í gær gegn þeirri ákvörðun að að skera niður rekstur svæðisstöðva Ríkisútvarpsins. Ráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Kristján L. Möller hlýddu á mótmælendur fyrir austan. „Ég hef það á stundum á tilfinningunni það sé farið í þetta gagnvart stöðvunum vegna þess að þeir ætli okkur þingmönnum landsbyggðarkjördæmanna að koma færandi hendi með einhverjar fjárfúlgur," sagði Kristján. Fátt var um svör þegar spurt var hvort hætt yrði við niðurskurðinn. „Við fengum til dæmis fulltrúa meirihlutaflokkanna á þingflokksfundi í fyrradag til að fara yfir þessi mál. Þannig að já við erum að reyna að setja okkur í inn í það því okkur er sjálfsögðu ekki sama um það hvernig hvernig þessir hlutir hafa þróast," sagði Steingrímur aðspurður hvort þeir ætluðu að beita sér gegn niðurskurði svæðisstöðvanna. Kristján upplýsti að hann hefði setið í ríkisstjórn þar sem rætt var hvort taka mætti Útvarpshúsið til annarra nota. „Ég heyrði meira og það var að nota húsnæðið í Efstaleiti undir lögreglustöð fyrir höfuðborgarsvæðið. Mér skilst að það sé gott pláss niðri í kjallara fyrir tukthúsklefa," sagði Kristján.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Fleiri fréttir Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Sjá meira