Rammaáætlun þarf afbrigði 1. apríl 2010 03:00 Fyrsti áfangi rammaáætlunar var kynntur árið 2007. Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri á Dalvík, stýrir vinnuhópi um áætlunina.fréttablaðið/eyþór
Beita þarf afbrigðum eigi að taka frumvarp um rammaáætlun um verndun og nýtingu á dagskrá Alþingis á yfirstandandi þingi. Í gær var útbýtingardagur, en þá þarf að leggja fram þau frumvörp sem lögð verða fyrir þingið. Frumvarpið hefur verið í þingflokki Vinstri grænna frá því í desember og hefur verið nokkuð umdeilt. Heimildir Fréttablaðsins herma að umþóttunartíminn hafi farið fyrir brjóstið á Samfylkingarfólki, sem vilji ljúka málinu. Nokkuð hafi kastast í kekki á milli stjórnarflokkanna, en á síðustu dögum hafi samvinnan orðið mun meiri. Samstaða sé að nást um meginlínur og vinnan gangi vel. Mikillar tortryggni hefur gætt í hópi náttúruverndarsinna gagnvart hugmyndunum. Það er ekki síst sú staðreynd að meta eigi náttúruperlur eins og Geysi og Gullfoss. Þeir treysta því illa að það sé einungis gert til að fá viðmið fyrir önnur svæði, líkt og fullyrt er. Raunar má segja að sú tortryggni sem ríkt hefur undanfarin ár í þessum málaflokki endurspeglist í vinnunni. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að vinnunni ljúki á næstunni. Kynningarferli á áætluninni á að ljúka 19. apríl, en sá frestur verður líklega framlengdur um tvær vikur. Stefnt er að því að frumvarpið hljóti afgreiðslu fyrir þann tíma.- kóp
Mest lesið Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Trump fundar með þjóðaröryggisráði Erlent Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Innlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Skjálfti fannst í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Sjá meira