Innlent

Snjóflóðahætta á Siglufjarðarvegi og í Ólafsfjarðarmúla

Siglufjörður.
Siglufjörður.

Vegurinn um Óshlíð er lokaður.

Hálkublettir eru á Siglufjarðarvegi og í Ólafsfjarðarmúla og þar er snjóflóðahætta, eru vegfarendur beðnir að vera ekki þar á ferð að nauðsynjalausu.

Ófært er á Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðs og beðið er með mokstur.

Á Vesturlandi eru hálkublettir og skafrenningur á flestum leiðum. Hálka og skafrenningur er á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og í Svínadal. Hálkublettir og óveður er á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum ófært um Súðavíkurhlíð og er beðið með mokstur. Vegurinn um Óshlíð er lokaður. Þæfingsfærð og stórhríð er í Súgandafirði og á Gemlufallsheiði einnig er þæfingsfærð í Önundarfirði. Ófært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði. Ófært er um Þröskulda, og á Klettsháls.

Þæfingsfærð er í Ísafjarðardjúpi. Á Ströndum eru hálkublettir og skafrenningur. Þæfingsfærð og skafrenningur á Hálfdáni, Mikladal og Kleifarheiði.

Á Norðurlandi eru hálkublettir á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarmúla en þar er mikil snjóflóðahætta eru vegfarendur beðið að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Hálka og skafrenningur eða éljagangur er á flestum leiðum.

Á Austurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum.

Á Suðausturlandi eru hálkublettir við Kirkjubæjarkalaustur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×