Þingmenn gagnrýna skort á undirbúningi 6. júlí 2010 06:30 Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, komu á fund viðskiptanefndar og efnahags- og skattanefndar Alþingis í gærmorgun.Fréttablaðið/Anton
Með tilmælum Seðlabanka og Fjármálaeftirlits til fjármálafyrirtækja vegna dóms Hæstaréttar um gengistryggingu lána er verið að hvetja almenning til að greiða fé inn í fyrirtæki sem standa sum mjög tæpt og gætu orðið gjaldþrota, segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Ljóst er að tilmælin eru hvorki skuldbindandi fyrir fyrirtækin eða almenning. Eygló gagnrýnir harðlega að þau hafi verið sett fram án nægilegs undirbúnings. Niðurstaða Hæstaréttar hafi komið stjórnsýslunni í opna skjöldu. Viðskiptanefnd og efnahags- og skattanefnd Alþingis héldu í gær sameiginlegan fund um hin umdeildu tilmæli vegna lánasamninga sem innihalda gengisviðmið gagnvart erlendri mynt. Fulltrúar Seðlabanka, FME og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins komu á fund nefndarmanna, auk Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra, Gísla Tryggvasonar, talsmanns neytenda, og fulltrúa frá Hagsmunasamtökum heimilanna. Eygló segir að eftir fundinn sé ljóst að ríkisstjórnin, Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið hafi ekki nauðsynlega yfirsýn yfir áhrif dóms Hæstaréttar. Undirbúningur fyrir útgáfu tilmælanna hafi verið óvandaður og ófullnægjandi. Yfirlýsingar viðskiptaráðherra, Seðlabanka og Fjármálaeftirlits um áhrif dóms Hæstaréttar á fjármálastöðugleika hafi ekki byggst á neinum sérstökum útreikningum. Enn sé ekki búið að kortleggja efnahagsleg áhrif dómsins og takmörkuð lögfræðiálit virðist hafa legið fyrir. Nefndarmenn óskuðu eftir því í gær að lögð yrðu fram þær matsgerðir og þau minnisblöð lögmanna sem tilmæli Seðlabankans og FME byggðust á. Stefán Jóhann Stefánsson, talsmaður Seðlabankans, sagði í gær við Fréttablaðið að lögfræðingar á vegum bankans og FME hefðu komið að gerð tilmælanna en sameiginlegt lögfræðiálit lægi ekki fyrir með þeim hætti að það verði gert opinbert. Eygló segir að þingmenn stjórnarandstöðunnar séu reiðubúnir til að fara strax í það verkefni að setja ný lög um flýtimeðferð mála sem tengjast gengislánum, setja lög um hópmálsóknir og fleira sem ekki megi dragast frekar en orðið er. Ríkisstjórnin hafi frá því í febrúar daufheyrst við viðvörunum um þá stöðu sem nú er komin fram. Líklega þurfi að dæma í fimm til sex prófmálum áður en öllum vafa hefur verið eytt í kjölfar dóms Hæstaréttar. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira