Innlent

Einn í lífshættu eftir árekstur á Reykjanesbraut

Allir þeir sem voru fluttir á slysadeild vegna slyssins við Álverið í Straumsvík í dag verða á Landspítalanum í nótt. Fjórir eru á almennum deildum og þá eru tveir sem eru á gjörgæslu. Annar þeirra er í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni.

Að minnsta kosti fimm af þeim sem lentu í árekstrinum eru í kringum tvítugt.

Tveir bílar lentu saman er þeir komu í gagnstæðri átt. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var áreksturinn mjög harður.






Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×