Innlent

Á annað hundrað erlendir fjölmiðlamenn komu til Íslands

Koma erlendra fréttamanna hingað til lands hefur skilað sér í yfirvegaðri umfjöllun og meiri skilningi á stöðu og sjónarmiðum Íslands, að mati utanríkisráðuneytisins.
Koma erlendra fréttamanna hingað til lands hefur skilað sér í yfirvegaðri umfjöllun og meiri skilningi á stöðu og sjónarmiðum Íslands, að mati utanríkisráðuneytisins. Mynd/GVA
Á annað hundrað erlendir fjölmiðlamenn frá um 50 fjölmiðlum komu til Íslands til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave í vikunni 1.-7. mars. Fjölmiðlafólkið kom einkum frá Norðurlöndunum, Bretlandi og Hollandi, en einnig frá Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Ítalíu, Írlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Japan og Kína.

Þegar ljóst var hversu mikill áhugi var erlendis á þjóðaratkvæðagreiðslunni var ákveðið að opna fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fréttamenn í Iðnó, að fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Það var gert miðvikudaginn 3. mars og var henni lokað að kvöldi sunnudags 7. mars. Þar var boðið upp á vinnuaðstöðu og fundi, formlega og óformlega, með ráðherrum og þingmönnum, auk þess sem aðrir hópar og einstaklingar fengu tækifæri til að koma sínum málstað á framfæri.

3. mars hélt dómsmálaráðherra fund með erlendum fréttamönnum í fjölmiðlamiðstöðinni. 4. mars sat efnahags- og viðskiptaráðherra fyrir svörum en einnig komu þingmennirnir Guðbjartur Hannesson og Kristján Þór Júlíusson í fjölmiðlamiðstöðina, kynntu feril Icesave-málsins og ræddu við fréttamenn. Seðlabanki Íslands hélt þann sama dag kynningu fyrir erlenda fréttamenn á stöðu íslenskra efnahagsmála. 5. mars hélt forsætisráðherra fjölsóttan blaðamannafund í Þjóðmenningarhúsinu. 6. mars hélt utanríkisráðherra fund í fjölmiðlamiðstöðinni og svaraði spurningum fjölmiðla þegar fyrstu tölur lágu fyrir. Loks hélt fjármálaráðherra blaðamannafund í fjölmiðlamiðstöðinni í gær 7. mars.

Auk þessara funda hafa ráðherrarnir veitt hinum erlendu fjölmiðlum og þeim sem ekki sendu fólk hingað hátt í hundrað einkaviðtöl. Ljóst er að koma erlendra fréttamanna hingað til lands hefur skilað sér í yfirvegaðri umfjöllun og meiri skilningi á stöðu og sjónarmiðum Íslands, að mati utanríkisráðuneytisins. Alvarlegra staðreyndavilla gæti mun minna en áður og samstarf og þjónusta við fréttamenn hafi styrkt enn frekar tengslanet stjórnvalda við erlenda fjölmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×