Innlent

Íbúar taka lokun mjög illa

Hjalti Kjartansson
Hjalti Kjartansson

Allt stefnir í að áfangaheimilinu EKRON í Reykjavík verði lokað um næstu mánaðamót, að sögn Hjalta Kjartanssonar framkvæmdastjóra. Hvorki hafa náðst samningar við ríki né sveitarfélög um áframhaldandi rekstur.

EKRON er endurhæfing og starfsþjálfun fyrir fólk sem er að koma úr áfengis- eða fíkniefnameðferð. Nú eru 75 manns í EKRON en um áramót hófu rúmlega tuttugu manns þaðan vinnu eða nám. Flest þeirra höfðu farið oft í meðferð áður en komist á réttan kjöl hjá EKRON. „Við erum byrjuð að undirbúa fólk undir að þessu verði lokað,“ segir Hjalti. „Það tekur því sannast sagna mjög illa.“ - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×