Hundruð fyrirtæki talin hafa greitt út ólögmætan arð 25. mars 2010 19:02
Grunur leikur á að hundruð fyrirtækja hafi greitt út ólögmætan arð sem nemur nokkrum milljörðum króna á undanförnum árum. Ólögmætar arðgreiðslur verða í flestum tilvikum skattlagðar sem launatekjur og beinist skattlagningin að þeim sem þær fengu. Skattyfirvöld hyggjast skoða arðgreiðslur fimm ár aftur í tímann. Stjórnir félaga gera árlega tillögu um hversu mikinn hluta af hagnaði liðins árs eða liðinna ára skuli greiða hluthöfum í arð. Úthlutunin byggist á samþykktum ársreikningi liðins árs. Samkvæmt hlutafélagalögum má ekki greiða út arð á fyrsta starfsári félags. Þá má ekki greiða út arð ef fyritækið hefur verið rekið með tapi eða ef arðgreiðslustofninn er neikvæður. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa skattyfirvöld komist að raun um að hundruð fyrirtækja hafa ekki farið eftir lögunum og greitt út ólögmætan arð. Skattyfirvöld hyggjast fara í nánari skoðun á málinu og verða arðgreiðslur síðustu fimm ára skoðaðar. Bráðabirgðaniðurstöður benda til að þarna liggi ósóttir skattstofnar upp á nokkra milljarða króna. Einnig mun vera nokkuð um að félög hafi greitt út arð af matsbreytingum eigna án þess að hafa talið þær matsbreytingar til skattskyldra tekna. Skattyfirvöld telja að það sé forsenda arðgreiðslu að tekjur hafi verið innleystar og hafi arði verið úthlutað af matsbreytingum eigna beri fyrirtækjum sem það gerðu að greiða skatta af matsbreytingunum. Alla jafna þarf að greiða fjármagnstekjuskatt af arðgreiðslum. Sá skattur nam lengi vel 10% en nemur í dag 18%. Verði það niðurstaðan að um ólögmætar arðgreiðslur sé að ræða eru þær skattlagðar sem launatekjur, eða í u.þ.b. 40% skattþrepi. Ofan á það hafa skattyfirvöld heimild til að leggja 25% álag. Skattálagningin mun í flestu tilvikum beinast að þeim sem fengu arðreiðslurnar.
Mest lesið Opna í Kaupmannahöfn en loka loftrýminu yfir Osló einnig vegna dróna Erlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Innlent Lýsa eftir Karli Helgasyni Innlent Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Erlent Vill frekar fjölga lögreglumönnum heldur en lögreglustöðvum Innlent Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Erlent Kastrup lokað vegna drónaflugs Erlent Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent Fleiri fréttir Vill frekar fjölga lögreglumönnum heldur en lögreglustöðvum Lýsa eftir Karli Helgasyni Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjá meira