Ætlar að loka Reykjavíkurflugvelli vegna skorts á slökkviliðsmönnum 25. mars 2010 12:54 Jón Viðar Matthíasson. „
Stjórnsýslukæran frestar ekki réttaráhrifum og því mögulegt að flugvellinum verði lokað komi ekki til úrbóta," segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðstjóri á höfuðborgarsvæðinu, en hann hefur sent Flugstoðum bréf þar sem hann tilkynnir þeim að Reykjavíkurflugvelli verði lokað á morgun verði ekki fjölgað í liði slökkviliðsmanna á vellinum. Nú eru þeir tveir en slökkviliðstjórinn telur að starfsmennirnir þurfi að vera fjórir. Flugstoðir hafa kært málið til umhverfisráðherra sem fer með málaflokk brunavarna en að sögn Jóns Viðars þá hefur sú kæra ekki áhrif á hugsanlega lokun flugvallarins á morgun. „En ég er sannfærður um að menn finni lausn á málinu áður en til þess kemur," segir Jón Viðar vongóður um framhaldið. Spurður hvort lokun flugvallarins ógni öryggi svo sem sjúkraflugi af landsbyggðinni segir Jón svo ekki vera. Smærri flugvélar geti tekið á loft og lent eins og sjúkraflugvélar. Til þess þurfi eingöngu tvo slökkviliðsmenn svo úr því geti orðið. Hann segir að öryggislega séð þá stafi engin hætta af lokun flugvallarins. Fram kom í hádegisfréttum RÚV að forsvarsmenn Flugstoða telja Jón Viðar ekki hafa lagalegan rétt til þess að loka flugvellinum. Spurður um þetta svara Jón Viðar því að samgönguráðuneytið hafi aðra sýn á þessa stjórnvaldsákvörðun en umhverfisráðuneytið. „Ég er ekki hæfur til þess að túlka lög, en ég lýt þeim," segir Jón um lagalegan ágreining ráðuneytanna. Að óbreyttu verður Reykjavíkurflugvöllur lokaður á morgun að sögn Jóns.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Erlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Færir nýársboðið fram á þrettándann Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Fleiri fréttir Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Sjá meira