Gosrásin beygði á síðustu stundu til Fimmvörðuháls 30. mars 2010 18:36
Litlu munaði að eldgosið kæmi upp í austurjaðri hábungu Eyjafjallajökuls og ylli stórhlaupi í Markarfljóti sem hefði rofið varnargarða og sett fólk í bráða hættu. Kvikan beygði hins vegar á síðustu stundu í átt til Fimmvörðuháls á leið sinni til yfirborðs.Það er rétt eins og lukkan hafi verið í liði með Íslendingum þegar jarðeldurinn kom upp á nánast eina blettinum milli jöklanna þar sem hann hafði engan ís til bræða. Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa nú, með greiningu jarðskjálftanna fyrir gosið, séð leið kvikunnar upp á yfirborð úr kvikuinnskoti á sjö til tíu kílómetra dýpi undir Eyjafjallajökli.Þremur dögum fyrir gosið byrjaði kvikan að brjóta sér leið upp úr kvikuhólfinu og stefndi upp í jökulhettuna en í kringum hádegi á laugardeginum, þegar kvikan átti aðeins tvo kílómetra upp til yfirborðs, beygði hún snögglega og skaust þá næstum lárétt í átt til Fimmvörðuháls þar sem hún kom upp um kvöldið. Hefði kvikan ekki beygt þarna af leið á endasprettinum hefði gosið komið upp undir jökli í austurjaðri hábungunnar ofan Steinholtsjökuls og valdið miklu jökulhlaupi til norðurs og út í Markarfljót.Hjá Almannavörnum telja menn að hlaup þarna hefði orðið um þrjúþúsund rúmmetrar að stærð. Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir að slíkt hlaup hefði valdið tjóni. Það hefði komið að varnargörðum við Fljótshlíð sem ekki séu byggðir til að þola þessa stærð. Hlaupið hefði farið yfir varnargarðana og Markarfljót flæmst um.Spurður hvort slys hefðu getað orðið á fólki svarar Víðir að það hefði klárlega geta gerst, ef fólk hefði verið þarna á ferðinni. Þá sé byggð á svæðinu þar sem fólk hefði einnig verið í hættu.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira