Bardagasveitir enn til staðar í Írak 24. ágúst 2010 12:31 MYND/AFP
Fregnir af því að allar bardagasveitir bandaríska hersins séu farnar frá Írak, virðast ekki alfarið á rökum reistar. Í síðustu viku var tilkynnt um brotthvarf allra bardagasveita hersins rúmum sjö árum eftir að innrásin hófst og Saddam Hussein var steypt af stóli. Enn eru þó tæplega fimmtíu þúsund bandarískir hermenn eftir í landinu, en þeir eiga ekki að taka þátt í bardögum heldur takmarkast hlutverk þeirra við að þjálfa írakska hermenn og lögreglumenn. Stærstur hluti þessara hermanna koma þó upphaflega úr bardagasveitum, sem aðeins hafa fengið nýtt nafn, að því er fram kemur á bandarísku vefsíðunni Army times. Með þessu móti geta sveitirnar búist til bardaga gerist þess þörf þó svo hlutverk þeirra í landinu eigi að vera þjálfun og ráðgjöf. Samkvæmt samningi sem gerður var við írösku ríkisstjórnina er stefnan síðan tekin á að koma öllum bandarískum hermönnum úr landinu fyrir lok desember á næsta ári. Flestir voru bandarísku hermennirnir í Írak um 170 þúsund í lok ársins 2007, en í byrjun þessa árs hafði þeim fækkað í tæplega 100 þúsund. Önnur ríki hafa þegar kallað alla hermenn sína heim frá Írak. Átökin í Írak hafa kostað um 4.400 bandaríska hermenn lífið. Óvíst er hve mörg mannslíf stríðið hefur kostað í heild, en lægstu tölur sem nefndar eru hafa verið í kringum 100 þúsund.
Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Sæti Artúrs logar Erlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Erlent Fleiri fréttir Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Sjá meira