Innlent

Fimm fluttir á slysadeild eftir bílveltu við Sandskeið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fimm voru fluttir á slysadeild til skoðunar þegar að bíll valt á Suðurlandsvegi við Sandskeið um áttaleytið í morgun. Að sögn sjúkraflutningamanna rann bíllinn út af veginum í hálku með þeim afleiðingum að hann valt. Ekki er talið að fólkið hafi slasast alvarlega.

Þá fóru tveir bílar út af í hálku á Reykjanesbrautinni eftir klukkan sjö í morgun. Enginn slasaðist að sögn lögreglunnar.

Rétt er að minna vegfarendur á að laumhált er á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×