Innlent

Boltinn hjá Íslendingum í Icesave-deilu

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Eftir fund með fjármálaráðherra Hollands og Bretlands er boltinn hjá íslenskum stjórnvöldum, en þjóðirnar eru opnar fyrir tillögum Íslendinga að lausn á Icesave deilunni.

Bretar og Hollendingar eru ekki tilbúnir að slá af kröfum sínum að svo stöddu en þeir eru tilbúnir að hlusta á allar skynsamlegar tillögur að lausn á Icesave-deilunni, segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, en hann og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sátu í gær fund í Haag í Hollandi með Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra og Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands og Myners lávarði, aðstoðarfjármálaráðherra Bretlands. Steingrímur J. Sigfússon tók undir með Bjarna í samtali við fréttastofu og sagði að þetta hefði í grófum dráttum verið efnisleg niðurstaða fundarins í Haag.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu eru Bretar og Hollendingar tilbúnir að ræða kjör og skilmála Icesave-samninganna. Það er hins vegar algjör forsenda fyrir slíkum viðræðum að það sé breið pólitísk samstaða um slíkt á Íslandi og að ekki verði hreyft við fjárhæð lágmarkstryggingarinnar í samningunum, en það er 20.887 evrur hjá hverjum innstæðueiganda.

Aðspurður hvort boltinn sé hjá Íslendingum núna segir Bjarni Benediktsson að skoða þurfi núna hvað sé ásættanleg niðurstaða áður en tillaga er lausn er kynnt fyrir Bretum og Hollendingum.

Bjarni Benediktsson segir að allar líkur séu á því að þrotabú Landsbankans geti greitt höfuðstól Icesave-lánsins miðað við lágmarkstrygginguna. Hann segir æskilegt að setjast niður með skilanefnd Landsbankans og endurmeta stöðu þrotabúsins. Hann segir að nú sé komið að þeirri stund að ákveða þurfi hvað sé ásættanlegt hér heima fyrir. Bjarni segir að stjórnarandstaðan sé með mjög ríkar kröfur í þeim efnum og að ríkisstjórnin verði að koma til móts við stjórnarandstöðuna. Stjórnarandstaðan muni ekki styðja breiða sátt ef hún byggist í megindráttum á kröfum Breta og Hollendinga.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×