Innlent

Erlend bílalán gætu lækkað um 40 prósent

Stór hluti bílalána landsmanna er tengdur gengi erlendra gjaldmiðla að hluta eða öllu leyti. Lán tryggð í jenum og svissneskum frönkum hafa hækkað mest frá hruninu haustið 2008. Fréttablaðið/Pjetur
Stór hluti bílalána landsmanna er tengdur gengi erlendra gjaldmiðla að hluta eða öllu leyti. Lán tryggð í jenum og svissneskum frönkum hafa hækkað mest frá hruninu haustið 2008. Fréttablaðið/Pjetur
Höfuðstóll bílalána, sem tekin voru í jenum og svissneskum frönkum síðla árs 2007, mun lækka um 36 til 38 prósent fallist eignaleigufyrirtæki á tillögur félagsmálaráðuneytisins um að færa erlend bílalán yfir í íslenskar krónur með 15 prósenta álagi á upphaflegan höfuðstól.

1,8 milljóna bílalán, sem tekið var í ágúst 2007 og tryggt í jenum og frönkum, stendur nú í rúmlega 3,1 milljón króna. Afborgun er um 62.000 krónur á mánuði. Í töflunni er tekið dæmi um slíkt lán sem tekið var til að greiða 81 prósent kaupverðs á Toyota Aygo smábíl.

Viðmiðunarmarkaðsverð bílsins er nú um 2,3 milljónir. Miðað við yfirfærslu í verðtryggt lán með 15 prósenta álagi á höfuðstól færðist lánið niður í tvær milljónir króna, sem er 36 prósenta lækkun. Eigandinn ætti þá 318.000 króna afgang, seldist bíllinn á viðmiðunarverði, í stað þess að skulda 843.000 krónur eftir sölu bílsins. Afborgun mundi lækka úr 62.000 krónum í um 44.000 krónur, eða um 18.000 krónur, en gæti lækkað enn frekar eða í 29 til 37 þúsund krónur á mánuði ef lántaki nýtir möguleika á að lengja lánstímann.

6,2 milljóna lán, tekið í jenum og frönkum í desember 2007 til að kaupa Range Rover fyrir 7,5 milljónir króna, stendur nú í 9,9 milljónum. Miðað við flutning í verðtryggt lán með 15 prósenta álagi myndi það skrifast niður um 3,8 milljónir og standa í 6,1 milljón. Viðmiðunarverð bílsins er í dag 6,3 milljónir. Veðsetningarhlutfallið, sem nú er 157 prósent af viðmiðunarverði, færi niður í 97 prósent af viðmiðunarverði. Samkvæmt upplýsingum úr félagsmálaráðuneytinu eru um 49 þúsund heimili í landinu með bílalán og um 90 prósent þeirra eru gengistryggð. Á bilinu 70 til 80 prósent þeirra voru tekin á árunum 2006 og 2007 þegar gengi krónunnar var sterkast.

Í meðfylgjandi dæmum er miðað við lán í jenum og frönkum. Þau lán hafa hækkað mest í kjölfar hrunsins. Eldri lán og lán, sem eru í öðrum myntum, hafa ekki ekki tekið jafnmiklum breytingum. Í slíkum tilvikum fer lækkun eftirstöðva, við flutning yfir í verðtryggð krónulán, niður fyrir 20 prósent. Miðað við lán, sem tekið var í febrúar 2005 og var að hálfu verðtryggt en að hálfu tryggt með myntkörfu, er lækkun á eftirstöðvum um 21 prósent.

peturg@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×