Villi og Andrea kósí saman 23. mars 2010 04:45 Anton Jónsson - Villi Naglbítur „
Ég mátti velja mér listamann til að koma fram með og ég valdi Andreu Gylfadóttur, enda er hún í gríðarlegu uppáhaldi hjá mér,“ segir Vilhelm „Naglbítur“ Anton Jónsson. Villi og Andrea koma fram nú á miðvikudagskvöldið á fimmtu Fuglabúrs-tónleikum FTT og Reykjavík Grapevine. „Við spilum bæði mín lög og hennar og svo teljum við í einhverja standarda. Mér finnst líklegt að við tökum Spiladósarlagið. Þetta er svo auðvelt með hennar stöff, það kunna allir Todmobile-lögin, bara nóg að hún kalli nafnið á laginu út í loftið. En það þarf að læra mitt stöff.“ Villi og Andrea koma fram með Birgi Bragasyni á kontrabassa og Hrafni Thoroddsen og Kjartani Valdimarssyni á píanó. „Þetta verður kósí og þægilegt, bara rauðvín og kerti. Engin tuddakeyrsla.“ Fyrir utan tónleikana eru Villi og Andrea bæði á fullu í leikhúsvinnu þessa dagana. „Hún er fyrir norðan, er tónlistarstjóri í Rocky Horror,“ segir Villi. „Ég er svo á fullu í Borgarleikhúsinu þar sem ég sé um músíkina í leikritinu Dúfurnar, sem verður frumsýnt 10. apríl. Þetta er mjög fyndið og súrt leikrit eftir Þjóðverja með eintómum stjörnuleikurum. Það var farin sú leið að spila þekkt lög. Siggi Sigurjóns syngur til dæmis Scooter-lag í einni senunni. Þetta verður helvíti töff.“ Tónleikar Villa og Andreu hefjast kl. 22 á morgun og eru haldnir á Café Rosenberg við Klapparstíg. Miðaverð er kr. 1.500. - drg
Mest lesið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Lífið Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Lífið „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Lífið Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Lífið Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Bíó og sjónvarp Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Lífið Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Charli xcx gifti sig Lífið Fleiri fréttir Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið Sjá meira