Enginn axlar ábyrgð Höskuldur Kári Schram skrifar 12. apríl 2010 18:45
Enginn af þeim sem sakaðir eru um að hafa gert mistök eða sýnt vanrækslu í starfi í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis hafa gengist við ábyrgð. Um er ræða fjóra fyrrverandi ráðherra og átta embættismenn. Allir vísa þeir ásökunum á bug og telja að ábyrgðin liggi hjá öðrum en þeim sjálfum. Tólf einstaklingar fengu tækifæri til að koma á framfæri skriflegum athugasemdum vegna skýrslu rannsóknarnefndar alþingis. Um er ræða einstaklinga sem nefndin telur að hafi gert mistök í starfi eða sýnt vanrækslu. Þetta eru fjórir ráðherra, þar á meðal Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra. Þá fengu átta embættismenn að koma á framfæri athugasemdum - þar á meðal Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri og Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri. Allir vísa því á bug að hafa gert mistök eða sýnt vanrækslu og í athugasemdum þessara einstaklingar er ítrekað vísað til þess að það hefði verið á ábyrgð annarra stofnana og ráðherra - eða embættismanna - að fara með viðkomandi verkefni. Davíð Oddsson, sakar rannsóknarnefndina meðal annars um þekkingarleysi og Geir H. Haarde skellir skuldinni nánast alfarið á stjórnendur og helstu eigendur bankanna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist ekki hafa búið yfir nægum upplýsingum. Nú þegar skýrsla rannsóknanefndarinnar hefur loksins litið dagsins ljós liggur það eitt fyrir að enginn gengst við ábyrgð vegna hrunsins. Rétt er þó að taka fram að Björgvin G. Sigurðsson lét af embætti sem þingflokksformaður Samfylkingarinnar í dag.
Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira