Handtekur fólk ef það neitar að fara 23. mars 2010 04:30 Fjöldi fólks lagði bílum sínum innst í Fljótshlíðinni í gær og hvessti augun á jökulinn. Sumir fóru í stuttan spássitúr í átt að gosinu. Heimamenn benda á að verstu ferðamennirnir séu þeir sem aka í leyfisleysi að jöklinum og setja með því sjálfa sig og aðra í hættu. fréttablaðið/vilhelm
Afar mikilvægt er að fólk hlýði fyrirmælum lögreglu um að yfirgefa hættusvæði, segir Sveinn K. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. Komi til þess að bjarga þurfi fólki sem tekur óþarfa áhættu, hefur fólkið ekki bara sett sig og sína í hættu, heldur björgunarmennina líka. Lögreglan á Hvolsvelli handtekur fólk sem ekki hlýðir þessum fyrirmælum, enda eru mannslíf í húfi. Gossvæði flokkist vitanlega undir hættusvæði. „Ef við erum með fólk um allar sveitir og símarnir detta úr sambandi í flóði er þetta fólk alveg einangrað, ef eitthvað kemur upp á,“ segir Sveinn. Í gær var rýmingu aflétt undir Eyjafjallajökli og íbúar áttu því að fá að sofa í rúmum sínum í nótt. Hins vegar átti að auka löggæslueftirlit. Eigendur sumarhúsa voru beðnir um að koma ekki á svæðið. Afar mikil umferð var í Fljótshlíðinni í gær og víðar um svæðið. Lögreglan greip til þess að loka helstu leiðum að Fimmvörðuhálsi. „Við hvetjum fólk til að vera ekki inni á hættusvæðinu. Þótt menn séu á stórum og miklum bílum og telji sig færa í allt þá erum við að eiga við náttúruöfl sem enginn getur sagt með vissu hvernig haga sér,“ segir Sveinn yfirlögregluþjónn. Umdæmi Sveins er um fimmtán prósent af landinu og því sinna alla jafna þrír lögregluþjónar. Í gær voru tíu manns á vaktinni. - kóþ
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira