Óttast kólerufaraldur í kjölfar flóða í Pakistan 3. ágúst 2010 06:00 Auk þess sem mikill fjöldi fólks hefur misst heimili sín hafa milljónir þurft að flýja þau. Fjöldi fólks gekk með eigur sínar í flóðvatninu og í bráðabirgðabúðir í Mohib Bhanda um helgina. nordicphotos/afp
Minnst 1200 manns hafa látist undanfarna daga í verstu flóðum í sögu Pakistans. Um tvær milljónir manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Nokkur hundruð manns tóku þátt í mótmælum gegn ríkisstjórninni á götum úti í Peshawar í gær. Fólkið er óánægt með aðgerðir stjórnvalda í kjölfar flóðanna, og segja þau ekki hafa brugðist nógu vel og hratt við. Ríkisstjórn landsins segir mörg þúsund björgunarmenn vera á vettvangi og þeir hafi þegar bjargað um 28 þúsund manns og dreift nauðsynjum til fólks. Þá hafi herinn sent 30 þúsund hermenn og margar þyrlur á flóðasvæðin. Björgunarmenn reyna nú að ná til 27 þúsund manns sem eru innlyksa á heimilum sínum vegna flóðanna. Yfirvöld óttast að þegar náð verður til þessara svæða muni tala látinna hækka verulega og mun meiri eyðilegging koma í ljós. Rauði krossinn segir að á þeim svæðum sem hafa orðið verst úti séu heilu þorpin hrunin. Óttast er að farsóttir muni breiðast hratt út á flóðasvæðunum. Heimildir herma að í bráðabirgðabúðum sem settar hafa verið upp hafi niðurgangur og kólera þegar gert vart við sig. Reynt er nú að koma í veg fyrir slíka útbreiðslu, því farsóttir af þessu tagi gætu valdið þúsundum dauðsfalla til viðbótar. Lykilatriði er að tryggja aðgang að hreinu vatni, en vatnsból hafa mengast í flóðunum. Til dæmis eru allir brunnar á verstu svæðunum fullir af mold, að sögn yfirmanna hjálparsamtaka. Fjöldi lækna hefur verið sendur í norðvesturhluta landsins til að takast á við farsóttaróttann. Flóðin koma á erfiðum tímum í Pakistan. Ríkisstjórn landsins var fyrir í veikri stöðu vegna efnahagsvandræða og stríðsins gegn talíbönum sem hefur orðið þúsundum að bana undanfarin ár. Þá er aðeins vika síðan 152 létust í mannskæðasta flugslysi sem orðið hefur í landinu. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti í gær um aukaframlag SÞ til hjálparstarfs í landinu, tíu milljónir dollara. Þá hafa Bandaríkin lofað sömu upphæð og Bretar ætla að verja tíu milljónum punda í hjálpar- og uppbyggingarstarfið. Enn meiri rigningu er spáð í Pakistan á næstu dögum. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira