Innlent

Lögregla leitar brennuvargs

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Lögreglan á Selfossi leitar brennuvargs sem kveikti í þvottahúsi í fjölbýlishúsi við Austurveg 34 á Selfossi á föstudag.

Talsverður eldur var í þvottahúsinu þegar slökkvilið kom á staðinn. Hann var slökktur og húsið reykræst. Engum varð meint af. Leitað var til tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að rannsaka eldsupptökin. Svo virðist sem um íkveikju sé að ræða. Lögreglan biður alla þá sem hafa orðið varir við grunsamlegar mannaferðir í og við húsið frá klukkan 19.00 til 19.50 að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010. - jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×