Innlent

Ungmenni stökkva í Sogið - veiðimenn saka lögreglu um viðbragðsleysi

SB skrifar
Sogið getur verið stórhættulegt enda straumþungt með endemum.
Sogið getur verið stórhættulegt enda straumþungt með endemum.

Stangveiðifélag Reykjavíkur varar ungmenni við því að stökkva ofan í Sogið. Í tilkynningu frá félaginu eru veiðimenn og aðrir hvattir til að tilkynna um þetta hættulega háttaleg til lögreglunnar. Félagið gagnrýnir lögregluna fyrir að taka ekki ábendingar um stökkin alvarlega.

„Veiðimenn í Sogi hafa undanfarna daga tilkynnt skrifstofu um hættulegt athæfi ungmenna á brúnni við Alviðru og Þrastarlund. Hefur hópurinn verið að stökkva fáklæddur af brúnni, sem er engin smásmíði, og ofan í þungan og kaldan strauminn niður undan veitingaskálanum í Þrastarlundi," segir í tilkynningunni.

Þar segir jafnframt að veiðimaður hafi um helgina hringt í lögregluna og greint frá því að hópur ungmenna væri að stökkva fram af brúnni við Þrastarlund í Sogið. Veiðimaðurinn hefði hins vegar talað fyrir daufum eyrum og enginn mætt á svæðið til að skakka leikinn.

„Veiðimenn þekkja það manna best að Sogið ber nafn með rentu, og það mikla vatnsfall hefur svo sannarlega tekið mannslíf í gegnum tíðina... Enginn björgunarhringur er á brúnni þar sem lífdagar þeirra hafa verið stuttir og þeim stolið jafn harðan og þeir eru settir á brúarhandriðið. " segir í tilkynningunni.

Það skal þó tekið fram að í frétt Vísis um stökk ungmenna í Sogið frá 19. júlí er haft eftir lögreglunni að hún hafi mætt á svæðið og skakkað leikinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×