Rækjuvinnslufólk styður ráðherra SB skrifar 21. júlí 2010 14:11 Rækjuvinnslan Dögun er á Sauðárkróki.
Starfsfólk stærstu rækjuvinnslu á landinu hefur sent frá sér yfirlýsingu til stuðnings ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar. Framkvæmdastjóri vinnslunnar segir að með ákvörðun ráðherra aukist aðgengi að hráefni sem sé atvinnuskapandi. „Þetta er í sjálfu sér ekkert flókið mál. Með ákvörðun ráðherra mun aðgengi að hráefni aukast og það er gott fyrir atvinnu bæði á sjó og í landi," segir Þröstur Friðfinnsson, framkvæmdastjóri Dögunar sem er rækjuvinnsla á Sauðarkróki. Forsvarsmenn LÍÚ hafa haldið því fram að rækjuvinnsla muni jafnvel leggjast af verði veiðarnar gefnar frjálsar segir Þröstur: „Það eru mjög sérstök rök að ef aðgengi að hráefni batnar leggist vinnsla af. Það er ljóst að öll aukin rækjuveiði við Ísland mun koma þeim rækjuvinnslum sem eru í landinu til góða."Yfirlýsing starfsmanna Dögunar á SauðárkrókiÞröstur gagnrýnir þá umfjöllun sem verið hefur um ákvörðun ráðherra og segir ekki gæta jafnvægis í henni. „Okkur finnst þetta vera ansi einhliða umfjöllun og því miður er ekki talað um hagsmuni vinnslunar af raunsæi. Við hjá Dögun höfum síðustu árin verið stærsta rækjuvinnslan á landinu en aðilar LÍÚ hafa ekki haft áhuga á að tala við okkur eða boða okkur á fundi vegna málsins. Við furðum okkur á því." Þröstur segir að Dögun eigi smávegis af rækjukvóta og muni því tapa einhverju þegar veiðarnar verði gefnar frjálsar. Hann býst hins vegar fastlega við því að bætt aðgengi að hráefni muni vega upp á móti því tapi." Starfsmenn Dögunar hafa allir skrifað undir stuðningsyfirlýsinguna og verður hún send sjávarútvegsráðherra. Þröstur segir mikilvægt að færa umræðuna á vitrænt plan. „Það hafa verið ansi stóryrtar yfirlýsingar frá útgerðarmönnum í fréttum, það er talað um að Byggðastofnun sé í hættu, sem eru mjög hæpin rök. Rækjukvótinn hefur ekki verið veiddur til fulls síðustu tíu árin og kvóti sem enginn vill veiða er ekki verðmætur. Það er engin lánastofnun með viti sem lánar út á verðlausan kvóta."
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur viðburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira