Innlent

OR vill aprílopnun

Elliðavatn Breyttur opnunartími er í augsýn.
Elliðavatn Breyttur opnunartími er í augsýn.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í gær fyrir sitt leyti tillögu Þorleifs Gunnlaugssonar borgarfulltrúa um að veiðitími hefjist framvegis 1. apríl í Elliðavatni í staðinn fyrir 1. maí. Orkuveitan á um tvo þriðju veiðiréttar á Elliðavatni. Þar eiga einnig veiðirétt Reykjavíkurborg, Kópavogur og Mosfellsbær auk einstaklinga sem eiga tæpan fimmtung.

Þorleifur hefur einnig lagt til að veiðin í vatninu verði ókeypis fyrir alla. „Það er ekkert hægt að ofveiða svona vatn með stangveiði,“ fullyrðir Þorleifur sem kveðst bjartsýnn á að bæði breyttur opnunartími og gjaldfrelsið verði að veruleika.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×