Innlent

Bræla hamlaði loðnuveiðum

Úr myndasafni.
Úr myndasafni.
Bræla á loðnumiðunum út af Austfjörðum kom í veg fyrir að skipverjar á Vilhelm Þorsteinssyni gætu veitt eins og þá langaði í gærkvöldi. Þeir köstuðu þó einu sinni og fengu 50 tonn, að sögn Kristjáns Vilhelmssonar, útgerðarstjóra Samherja. Menn búast þó að veðrið gangi niður í dag. Fleiri skip eru nú að tygja sig til loðnuveiða, þannig er Hornafjarðarbáturinn Jóna Eðvalds nú á leið á miðin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×