Fremstu vefhönnuðir heims til landsins 7. október 2010 09:00 Einar Þór segir efni og innihald vefja oft mæta afgangi þegar hönnun þeirra og frágangi tæknilegra atriða er lokið. „
Ísland, Sílíkondalur norðursins, er meðal mest spennandi staða í tæknibransanum um þessar mundir. Hér er nóg af góðum hugmyndum, flottum nýsköpunarfyrirtækjum og umhverfisvænum orkuskýjum." Svona hljóðar meðal annars lýsingin á ráðstefnunni Iceweb sem hefst á morgun. Hún er haldin á vegum SVEF, Samtaka vefiðnaðarins á Íslandi, og kemur fjöldi af fremstu vefhönnuðum heims hingað til lands til að sækja hana. „Þetta er þriðja Iceweb-ráðstefnan. Við héldum þá fyrstu árið 2006. Þá var áherslan lögð á að flytja vefiðnaðinn inn í framtíðina, það er að vinna vefi eftir ákveðnum vinnubrögðum og forrita eftir vefstöðlum. Þetta bar góðan árangur og nú stöndum við framarlega hér á landi," segir Einar Þór Gústafsson, formaður SVEF. Ráðstefnan er áfram með puttann á púlsinum og þetta árið er áherslan lögð á textaskrif og efnisstjórnun á vefnum. „Efni og innihald vefja er oft á tíðum ekki nógu gott. Vandamálum tengdum tækninni hefur farið fækkandi en efnið og innihaldið er jafnan sem mætir afgangi þegar hönnun og frágangi á tæknilegum atriðum er lokið," segir Einar. Einnig verða fluttir fyrirlestrar um farsímavefi, hvernig notendur haga sér á netinu, samfélagsvefi og margt fleira. Fjöldi virtra erlenda sérfræðinga tekur til máls en Iceweb hefst í dag með vinnustofum. Á morgun fer ráðstefnan sjálf síðan fram á Hótel Loftleiðum. Viðbrögð hafa verið afar góð en hægt er að afla sér frekari upplýsinga um skráningu og dagskrá á heimasíðu ráðstefnunnar, icewebconference.com.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Sjá meira