Innlent

Fremstu vefhönnuðir heims til landsins

Einar Þór segir efni og innihald vefja oft mæta afgangi þegar hönnun þeirra og frágangi tæknilegra atriða er lokið.
Einar Þór segir efni og innihald vefja oft mæta afgangi þegar hönnun þeirra og frágangi tæknilegra atriða er lokið.
„Ísland, Sílíkondalur norðursins, er meðal mest spennandi staða í tæknibransanum um þessar mundir. Hér er nóg af góðum hugmyndum, flottum nýsköpunarfyrirtækjum og umhverfisvænum orkuskýjum."

Svona hljóðar meðal annars lýsingin á ráðstefnunni Iceweb sem hefst á morgun. Hún er haldin á vegum SVEF, Samtaka vefiðnaðarins á Íslandi, og kemur fjöldi af fremstu vefhönnuðum heims hingað til lands til að sækja hana.

„Þetta er þriðja Iceweb-ráðstefnan. Við héldum þá fyrstu árið 2006. Þá var áherslan lögð á að flytja vefiðnaðinn inn í framtíðina, það er að vinna vefi eftir ákveðnum vinnubrögðum og forrita eftir vefstöðlum. Þetta bar góðan árangur og nú stöndum við framarlega hér á landi," segir Einar Þór Gústafsson, formaður SVEF.

Ráðstefnan er áfram með puttann á púlsinum og þetta árið er áherslan lögð á textaskrif og efnisstjórnun á vefnum. „Efni og innihald vefja er oft á tíðum ekki nógu gott. Vandamálum tengdum tækninni hefur farið fækkandi en efnið og innihaldið er jafnan sem mætir afgangi þegar hönnun og frágangi á tæknilegum atriðum er lokið," segir Einar.

Einnig verða fluttir fyrirlestrar um farsímavefi, hvernig notendur haga sér á netinu, samfélagsvefi og margt fleira. Fjöldi virtra erlenda sérfræðinga tekur til máls en Iceweb hefst í dag með vinnustofum. Á morgun fer ráðstefnan sjálf síðan fram á Hótel Loftleiðum.

Viðbrögð hafa verið afar góð en hægt er að afla sér frekari upplýsinga um skráningu og dagskrá á heimasíðu ráðstefnunnar, icewebconference.com.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×