Listamenn kynna störf sín fyrir Ásbirni 7. október 2010 13:13 Ásbjörn hefur beðist afsökunar ummælum sínum um listamenn Mynd: Pjetur
Ásbjörn Óttarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, situr nú fund með stjórn Bandalags íslenskra listamanna í Iðnó. Í tilkynningu frá félaginu segir að Ásbirni hafi verið boðið á fund með stjórninni þar sem ekki sé vanþörf á að uppfræða þjóðkjörna fulltrúa um störf og stöðu listamanna. Ummæli Ásbjörns í umræðum um fjárlög voru eftirfarandi: „Síðan en ekki síst það sem hæstv. fjármálaráðherra nefndi með tónlistarhúsið, sem er mér mjög lítið að skapi og ég nánast þoli ekki. Auðvitað átti að hætta að byggja tónlistarhúsið og láta það standa sem minnisvarða um þetta rugl sem var hér í gangi (Gripið fram í.) Þetta er algjört rugl. Síðast en ekki síst eitt sem ég gleymdi að koma inn á. Listamannalaun eru hækkuð um 35 milljónir. Af hverju geta þessir listamenn ekki farið að vinna (Forseti hringir.) og komið sér bara í eðlilega vinnu eins og allt venjulegt fólk?" Meðal þess sem lagt verður fram á fundinum er talnaefni um aðrsemi lista og menningar, enda sjálfsagt skoða hagrænan þátt listageirans í samhengi við aðra þætti sem bera uppi samfélag okkar. Sameiginlegir sjóðir skattborgaranna eru notaðir til að halda uppi atvinnustigi þjóðarinnar með þvi að skapa störf í ýmsum atvinnugreinum. Það gildir um störf í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu, stjórnsýslunni, vegagerð, stóriðju og listum. Þessi störf eru misjafnlega dýr og þau skila sér misvel til baka til samfélagsins. Störf í listum og menningu kosta samfélagið lítið en þau skila miklu til baka. Sem dæmi má nefna að hver króna sem hið opinbera leggur í kvikmyndagerð skilar sér til baka í formi skatta og annars virðisauka. Þá sýna nýlegar norskar rannsóknir að hvert starf í menningargeiranum skili frá 10 til 26 afleiddum störfum í verslun og þjónustu. Ef bílaiðnaður er skoðaður til samanburðar þá eru afleiddu störfin einungis 6 talsins. Á fundinum verða kynntar fyrstu tölur úr opinberu verkefni sem unnið er að og ætlað er að kortleggja hlut lista og skapandi greina í hagkerfinu. Þar kemur fram að sjávarútvegurinn velti um 114 milljörðum á ársgrundvelli en menningargeirinn 81 milljarði. Stjórn BÍL vonar að fundur hennar með Ásbirni Óttarssyni verði til þess að slá á þá fordóma og fákunnáttu sem lesa mátti úr ummælum þingmannsins í vikunni. Sameiginlegt verkefni okkar hlýtur að vera að standa vörð um blómlegt og fjölbreytt atvinnulíf.
Tengdar fréttir Hvers vegna er verið að styrkja listamenn? Alþingismenn tókust á um áherslur í fjárlagafrumvarpinu á þingi í gær. Þar sagðist Ásbjörn Óttarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins til dæmis ekki skilja hvers vegna verið er að styrkja listamenn. Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og verðandi formaður fjárlaganefndar, segir að það verði að koma í veg fyrir að niðurskurðurinn bitni á byggðum landsins. 6. október 2010 12:23 Ásbjörn biður listamenn afsökunar Ásbjörn Óttarsson, þingmaður sjálfstæðismanna, biðst afsökunar á ummælum sínum á þingi um að listamenn gætu fengið sér vinnu eins og venjulegt fólk. Hann segist þó ekki vera hlynntur listamannalaunum. 7. október 2010 12:14 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Hvers vegna er verið að styrkja listamenn? Alþingismenn tókust á um áherslur í fjárlagafrumvarpinu á þingi í gær. Þar sagðist Ásbjörn Óttarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins til dæmis ekki skilja hvers vegna verið er að styrkja listamenn. Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og verðandi formaður fjárlaganefndar, segir að það verði að koma í veg fyrir að niðurskurðurinn bitni á byggðum landsins. 6. október 2010 12:23
Ásbjörn biður listamenn afsökunar Ásbjörn Óttarsson, þingmaður sjálfstæðismanna, biðst afsökunar á ummælum sínum á þingi um að listamenn gætu fengið sér vinnu eins og venjulegt fólk. Hann segist þó ekki vera hlynntur listamannalaunum. 7. október 2010 12:14