Spyr iðnaðarráðherra um íslensk skúffufyrirtæki Erla Hlynsdóttir skrifar 7. október 2010 15:02 Mörður segir að honum finnist undarlegt ef rétt er að Byggðastofnun skipti við gróin sjávarútvegsfyrirtæki í gegn um skúffufyrirtæki. Mynd: Valgarður
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til iðnaðarráðherra um hvort Byggðastofnun sé í raun að lána fé til svokallaðra skúffufyrirtækja. Mörður segir að í ljósi umræðunnar um Magma sé sérkennilegt að heyra af því að Byggðastofnun, sem er opinber stofnun og rekin aðeins fyrir skattfé almennings, sé í viðskiptum við fyrirtæki sem virðast stofnuð með það fyrir augum að vera rekin fyrir lánsfé frá stofnuninni. Fréttastofa hefur greint frá því að Byggðastofnun veitti sjávarútvegsfyrirtækjum lán gegn veðum í verðlausum rækjukvóta. Heildarupphæð lánanna er 1,3 milljarðar króna en ólöglegt er að veðsetja kvóta. Umrædd fyrirtæki eru Forrest Gump, Birnir, F420 og Útgerðarfélagið ÞH 380. Mörður lagði í gær fram fyrirspurn á Alþingi þar sem hann óskaði svara við því hvort fyrirtæki fái lán hjá Byggðastofnun án þess að veð sé lagt til tryggingar. Í framhaldi af því spyr hann hversu mörg slík lán hafi verið veitt á árunum 2006 til 2009 og til hverra. Einnig óskar Mörður eftir upplýsingum um hver heildarupphæð slíkra lána sé og hversu mörg þeirra séu í vanskilum. Mörður vill fá að vita hvort Byggðastofnun skipti við fyrirtæki sem eingöngu eru stofnuð til að fá veðlaus lán hjá stofnuninni, það er svokölluð skúffufyrirtæki. „Hver dæmi eru um þetta frá árunum 2006- 2009? Upplýsingar óskast um lánsupphæð, nafn fyrirtækis, eiganda þess og aðsetur," segir í fyrirspurn Marðar. Mörður segir í samtali við Vísi að honum finnist undarlegt ef rétt er að Byggðastofnun skipti við gróin sjávarútvegsfyrirtæki í gegn um skúffufyrirtæki. „Sem þýðir að þau virðast ekki taka ábyrgð á þeim lánum sem þau fá hjá Byggðastofnun og láta þau svo falla á almenning," segir Mörður. Forrest Gump er í eigu sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis hf. og F-420 í eigu Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. í gegn um eignarhaldsfélagið Skollaborg ehf. sem síðan er í eigu HG hf. HG og Vísir voru bæði skráð fyrir úthafsrækjukvóta á þessu ári en dótturfyrirtækin ekki. Hvorugt fyrirtækjanna hefur stundað rækjuveiðar á síðustu árum heldur notað kvótann til millifærslna eða leigt hann frá sér. Tengdar fréttir: Verðlaus kvótaveð Eignalaus skúffufyrirtæki skulda Byggðastofnun milljarð
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira