Landsbankinn mun þurfa að afskrifa nokkur hundruð milljónir 5. júlí 2010 18:33
Landsbankinn mun þurfa að afskrifa nokkur hundruð milljónir króna vegna sölu á dreifingarfyrirtækinu Parlogis. Bankinn lánaði fyrrverandi eigendum félagsins nær allt kaupverð þess og tók það svo yfir þegar móðurfélagið varð gjaldþrota á síðasta ári. Parlogis annast hýsingu og dreifingu á lyfjamarkaði. Félagið var áður dótturfélag Atorku en var selt árið 2007 með skuldsettri yfirtöku til Dreifingarmiðstöðvarinnar sem var í eigu sömu aðila og Penninn. Svo virðist sem Landsbanki Íslands hf. hafi lánað þessum aðilum fyrir nær öllu kaupverðinu þar sem eigið fé Parlogis var aðeins um 2% í lok sama árs. Eigendur félagsins greiddu sér þó út rúmlega 160 milljónir í arð árið eftir. Á síðasta ári varð Dreifingarmistöðin gjaldþrota. Landsbankinn leysti þá til sín allt hlutafé félagsins en í dag eiga Vestia, dótturfélag Landsbankans, 80% og Atorka 20% í félaginu. Landsbankinn breytti tæplega 740 milljóna króna skuld Parlogis í hlutafé og Atorka tæplega 520 milljónum. Í sölugögnum kemur fram að 73% af tekjum Parlogis er vegna sölu og dreifingar á vörum frá Icepharma. Icepharma var áður í eigu Atorku, líkt og Parlogis, og hafa fyrirtækin unnið náið saman. Í gögnunum kemur einnig fram að samningurinn milli félaganna er uppsegjanlegur í lok næsta árs. Meirihluti tekna þess eru því ótryggar eftir að samningurinn rennur út. Icepharma er því í þeirri stöðu að vera nær eini mögulegi kaupandi félagsins en Landsbankinn er einnig viðskiptabanki Icepharma. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum munu skuldir Parlogis við bankann, sem standa í dag í um einum milljarði, flytjast yfir til nýs eiganda og ekki verða afskrifaðar. Eftir stendur þó að skuldbreyting lána yfir í hlutafé fæst ekki greidd að fullu með söluandvirði og því er allt útlit fyrir að Landsbankinn þurfi að afskrifa nokkur hundruð milljónir króna vegna sölu á félagi sem er nú í faðmi bankans í annað sinn á þremur árum. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum voru tíu aðilar sem fengu sölugögnin en nú standi eftir eitt tilboð í félagið. Kristján Jóhannsson, stjórnarformaður Icepharma, vildi ekki svara því hvort Icepharma eigi það tilboð.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira