Innlent

Fleiri mótmæla í kvöld en á föstudag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjöldi fólks er kominn á Austurvöll. Mynd/ Anton.
Fjöldi fólks er kominn á Austurvöll. Mynd/ Anton.

Verulega hefur fjölgað á Austurvelli eftir því sem liðið hefur á kvöldið. Blaðamaður Vísis sem er á staðnum telur að fjöldinn sé meiri en var síðastliðinn föstudag. Búið er að skjóta úr nokkrum kúlublysum og málningu hefur verið skvett á Alþingishúsið.

Kveikt hefur verið á varðeldi á miðjum Austurvelli. Mótmælin hafa verið kölluð „Tunnumótmæli“ og berja mótmælendur í tunnum svo það ómar um allan Austurvöll.

Hægt er að fylgjast með mótmælunum í beinni útsendingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×