Innlent

Magna upp hávaðann með skemmtistaðagræjum

Skemmtistaðurinn Hvíta Perlan tekur þátt í mótmælunum.
Skemmtistaðurinn Hvíta Perlan tekur þátt í mótmælunum.

Þúsundir manna mótmæla nú við þinghúsið á Austurvelli. Forsvarsmenn skemmtistaðarins Hvítu Perlunnar í Austurstræti, þar sem súlustaðurinn Óðal var áður til húsa, taka virkan þátt í mótmælunum og magna upp hávaðann.

Fjölmörgum hátölurum skemmtistaðarins hefur verið komið fyrir í gluggum sem snúa að þinghúsinu þar sem fram fer umræða um stefnuræðu forsætisráðherra og spila þeir á fullum styrk.

Kveikt hefur verið á varðeldi á miðjum Austurvelli. Mótmælin hafa verið kölluð „Tunnumótmæli" og berja mótmælendur í tunnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×