Innlent

Skemmdir unnar á fjarskiptamöstrum

Grunur leikur á að skemmdarverk hafi verið unnin á rafköplum í fjarskiptamöstrum í grennd við Veðurstofuna við Bústaðaveg upp úr klukkan fjögur í nótt. Þar voru rafkaplar sviðnir með þeim afleiðingum að örbylgjusendingar með sjónvarpsefni féllu niður.

Þegar slökkvilið kom á vettvang logaði enginn eldur, en tæknimenn lögreglu voru kvaddir á vettvang. Að athugun þeirra lokinni tóku tæknimenn við og komu sendingum á að nýju upp úr klukkan sjö. Lögregla er að kanna hvort einhver hefur séð til mannaferða við möstrin.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×