Innlent

Fjármálaráðherrar funda í Danmörku

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gert er ráð fyrir að Steingrímur J. Sigfússon verði á meðal ráðherranna. Mynd/ Vilhelm.
Gert er ráð fyrir að Steingrímur J. Sigfússon verði á meðal ráðherranna. Mynd/ Vilhelm.
Næsta mánudag funda norrænir fjármálaráðherrar í Danmörku og er gert ráð fyrir að Steingrímur J. Sigfússon verði þar á meðal.

Ráðherrarnir ætla að ræða um efnahagsþróunina og þau úrlausnarefni sem verið er að vinna að í norrænu ríkjunum. Jafnframt verða málefni Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins rædd og skattamál sem varða öll ríkin, segir í tilkynningu frá Norðurlandaráði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×