Gefur 230 tonn af vatni til Haítí 19. janúar 2010 02:30 Jón Ólafsson.
Hjálparstarf Jón Ólafsson, eigandi vatnframleiðandans Icelandic Glacial, hefur gefið 230 tonn af vatni á 400 þúsund flöskum til þeirra sem eiga um sárt að binda á hamfarasvæðunum á Haítí. Með aðstoð Eimskips komst Jón í samband við Bandaríkjaher, sem flytur vatnið sjóleiðina frá Richmond í Virginíuríki í Bandaríkjunum og er áætlað að það berist til Haítí í dag. Alls 220 tonn fara með skipinu en í gær fóru tíu tonn með flugi frá Kaliforníu. Verðmæti vatnsins er rétt innan við hálf milljón dollara, eða jafnvirði rúmra sextíu milljóna íslenskra króna. Jón segir að ekkert sé mikilvægara en vatn í aðstæðum sem þessum, þar á eftir komi matur og lyf. „Það segir sig sjálft að okkur er ljúft og skylt að gera það sem við getum til að hjálpa," segir Jón. „Allir sem geta gert eitthvað eiga að gera það." Þó sé ljóst að vatnstonnin 230 séu bara dropi í hafið. Jón segir að hann hafi ákveðið þetta eftir að hafa heyrt í félaga sínum sem rekur fyrirtæki á Haíti. „Hann hafði bara fundið 20 prósent af sínum starfsmönnum og þeir höfðu allir misst heimili sín," segir Jón. Hann lét því til sín taka í gegnum hliðarverkefni sitt, sjálfseignarstofnunina Icelandic Glacial Water for Life, sem ætlað er að hjálpa við aðstæður sem þessar. - sh
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Sjá meira