Strandsiglingar álitlegur kostur til vöruflutninga 5. júní 2010 03:00 Lagðir eru til vöruflutningar milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Strandsiglingar eru álitlegur kostur fyrir vöruflutninga á Íslandi. Þetta er meginniðurstaða skýrslu starfshóps samgönguráðuneytisins sem kynnt var í gær. Stungið er upp á þremur mögulegum siglingaáætlunum í skýrslunni, en ein þeirra er talin sérstaklega álitleg. Sá kostur felur í sér siglingu á milli Reykjavíkur og Akureyrar með viðkomu á Ísafirði. Hugsanlega væri einnig komið við á Sauðárkróki og Patreksfirði. Gert er ráð fyrir að slík sigling tæki fimm daga og sennilegt þykir að töluverður sparnaður fylgdi því að nota þessa flutningsleið borið saman við flutninga á landi. Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði á blaðamannafundi sem haldinn var af þessu tilefni að til væru áhugasamir aðilar í landinu sem hefðu mikið rætt við sig um strandsiglingar. Sagðist hann vonast til þess að einhver þeirra væri tilbúinn til að fara í verkefnið á markaðslegum forsendum en að hið opinbera þyrfti að huga að málinu með umhverfis- og umferðaröryggismál í huga auk þess sem minna slit á vegum myndi að mati skýrsluhöfunda spara hinu opinbera 200 milljónir á ári. Strandsiglingar á Íslandi lögðust af árið 2004 og mestallir þungaflutningar fara nú fram með vörubílum. Rætt hefur verið um endurupptöku þeirra allar götur síðan. Samgönguráðherra sagði í dag að skýrslan ætti að klára þá umræðu og vonaðist eftir að niðurstaðan yrði sú að þetta væri hægt. „Annaðhvort komum við strandsiglingum í gang núna eftir þessa skýrslu eða við viðurkennum bara að það sé ekki hægt.“ - mþl
Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Umbóta þörf til að halda uppi lífsgæðum á Íslandi að mati OECD Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Vegagerðin vill hjörtun burt Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira