Diskóeyjan verður að söngleik í Borgarleikhúsinu 15. desember 2010 11:00
Diskóeyjan er ein vinsælasta plata ársins og lagið Gordjöss hefur notið ótrúlegra vinsælda. Nú er afráðið að Diskóeyjunni verður breytt í söngleik og sett upp sem slík í Borgarleikhúsinu árið 2012. Bragi Valdimar Skúlason og Óttarr Proppé, hugmyndasmiðirnir á bak við plötuna, ætla að setjast niður á næstunni og skrifa nýtt handrit sem verður þó byggt á söguþræðinum í Diskóeyjunni en hún fjallar um systkini sem send eru á Diskóeyjuna til að læra sitthvað um lífið og tilveruna hjá prófessornum, vinum hans og furðuverum. Þá stendur til að semja lög fyrir nýja Diskóeyjarplötu. „Þetta var óumflýjanlegt og við Óttarr munum kokka þetta upp," segir Bragi Valdimar í samtali við Fréttablaðið. Hann veit reyndar ekki hvernig hann á að fara að því að ná í skottið á Óttarri því hann sé yfirleitt lokaður inni á fundum sökum starfs síns sem borgarfulltrúi Besta flokksins. „Ég verð bara að tjóðra hann niður við næsta stól," segir Bragi í alvarlegum tón. Lagahöfundurinn og textasmiðurinn viðurkennir hins vegar góðfúslega að þetta hafi alltaf verið hugmyndin. „Þetta var alveg á hernaðaráætluninni, að koma þessu í leikhúsið. Þegar við gerðum Gilligill-plötuna þá fundum við aldrei almennilegan flöt á þessu en frá því að við staðsettum persónu Óttars á Diskóeyjunni var þetta aldrei nein spurning í okkar huga." Braga kom það jafnframt í opna skjöldu hversu vel leikhúsheimurinn er skipulagður. Því hann hafði allt eins búist við því að hoppa upp á svið um næstu helgi og frumflytja söngleikinn. Slíkt hefði nú ekki þótt óvanalegt í tónlistarheiminum. En stefnan hefur verið sett á 2012 og Stóra svið Borgarleikhússins. Stóru spurningarnar hljóta hins vegar að vera tvær; mun Óttarr bregða sér í líki Prófessorsins og ætlar Páll Óskar að vera með? „Það hefur komið til tals með Óttarr enda ekki auðvelt að fara akkúrat í þessa skó og feta í fótspor hans. Og hvað varðar Pál Óskar þá hefur verið rætt við hann. Páll er mjög jákvæður enda þykir honum ekkert leiðinlegt að spranga um sviðið." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira